Það eru spennandi fréttir frá Dalshverfi III þar sem framkvæmdir halda áfram að ganga vel og fyrstu íbúðirnar eru að verða tilbúnar til afhendingar.
Fyrstu íbúðir afhentar
Öryggisúttekt verður framkvæmd á fyrstu 8 íbúðunum í hverfinu þann 10. desember og strax í kjölfarið fer afhending fram á þessum íbúðum dagana 10.–15. desember. Húsin við Brekadal 68 og 70 eru í lokafrágangi og tilbúin til að taka á móti nýjum íbúum, sem geta byrjað að skapa sín eigin heimili rétt fyrir jólin.
Framvinda í Brekadal 72
Framkvæmdir við Brekadal 72 ganga einnig vel. Þar er innanhúsfrágangur langt kominn og þrátt fyrir að jólafríið nálgist stefnum við að afhendingu íbúða í þessu húsi í byrjun febrúar 2025.
Fyrsti áfangi klár í apríl/maí 2025
Í fyrsta áfanga Dalshverfis III er stefnt að því að allar íbúðir verði afhentar íbúum á tímabilinu apríl til maí 2025. Þetta skapar einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja festa kaup á nýju heimili í þessu vinsæla hverfi sem státar af bæði fjölbreyttu umhverfi og hagkvæmum, nútímalegum íbúðum.
Stafrænar lausnir frá